Nánari lýsing

Vistabella – Capri VI 7

Neðri sérhæð í Vistabella hverfinu með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með sundlaug.  Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, háhraða WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls.  Matvöruverslun, veitingastaðir og önnur þjónusta er í göngufæri við íbúðina og Vistabella golfvöllurinn stutt frá íbúðinni.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið.  Eldhúsið er bjart og vel búið með helstu áhöldum til matargerðar.

Svefnherbergin eru þrjú

Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum sem eru öll með góðum 160×200 hjónarúmum, loftkælingu og góðum fataskápum.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.  Einnig er svefnsófi í íbúðinni sem hentar fyrir 1-2 börn.

Baðherbergin eru tvö

Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergi er með salerni, vask, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.

Verönd og sundlaugargarður

Frá stofu eru rennihurð sem opnar út á flísalagða verönd og garð, þar eru sólbekkir, borð, stólar og Weber gasgrill.  Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar.  Veröndin snýr í suðurátt og frá henni er beint aðgengi að sundlauginni í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að.  Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni.  Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.